Ný tækifæri fyrir einhverf ungmenni
Síðasta vetur stóð Opni háskólinn í HR fyrir námslínunni Forritun fyrir einhverf ungmenni í fyrsta sinn. Markmið námsins var að veita ungu fólki á einhverfurófi tækifæri til að kynnast forritun í stuðningsríku námsumhverfi, efla sjálfstraust og skapa tækifæri til félagslegra samskipta og tengslamyndunar fyrir þau sem höfðu áhuga á því.
Námið var byggt upp með hliðsjón af forritunarkennslu í grunnnámi í tölvunarfræði, en verkefni og nálgun voru aðlöguð að áhuga og stöðu hvers nemanda. Nemendur lærðu grunnatriði í Python-forritun og unnu að eigin forritunarverkefnum í seinni hluta námsins.

Dr. Pragya Verma er nýdoktor við tölvunarfræðideild HR og vinnur að rannsóknarverkefnum sem snúa að því að móta starfsvenjur í tengslum við taugafjölbreytileika innan háskólanáms. Hún kom að kennslu í náminu og segir það hafa gengið afar vel.
„Við teljum að þetta nám hafi heppnast ótrúlega vel,“ segir Pragya. „Markmiðið var að kynna nemendur fyrir hugtökum og grunnatriðum í Python-forritun og nemendur náðu að fara yfir öll þau viðfangsefni sem lögð voru fyrir.“
Að sögn Pragyu komu nemendur inn í námið með mjög ólíka reynslu af forritun. Sum höfðu litla eða enga fyrri reynslu á meðan önnur þekktu eitthvað til. Þrátt fyrir það náðu þau öll að vinna með Python, leysa verkefni og sýna fram á skilning á efninu.
Í seinni hluta námsins unnu nemendur að eigin verkefnum þar sem þeir fengu að tengja forritun við eigin hugmyndir og áhugasvið. Verkefnin voru fjölbreytt og snerust meðal annars um leikjagerð, gagnagreiningu og þrívíddarlíkön.
„Það sem skiptir miklu máli er að nemendur fá tækifæri til að vinna með eigin hugmyndir. Þeir geta valið verkefni sem tengjast áhugasviði þeirra og lært að breyta skapandi hugmyndum í raunveruleg forritunarverkefni,“ segir Pragya.
Framfarir í forritun og aukið sjálfstraust
Pragya segir að framfarir hafi orðið á mörgum sviðum meðan á náminu stóð. Fyrst og fremst hafi nemendur tekið framförum í skilningi sínum á forritun en einnig hafi jákvæð þróun orðið í sjálfstrausti, sjálfstæði og samskiptum.
„Við sáum miklar framfarir í samskiptum nemenda. Sumir nemendur voru frekar hlédrægir í upphafi, en fóru smám saman að ræða áhugamál sín, verkefnin sín og ólík viðfangsefni námsins bæði við aðra nemendur og kennara. Eftir því sem leið á urðu nemendur öruggari í að spyrja spurninga, segja frá því sem þeim fannst erfitt, segja frá því sem þeim hafði vel tekist og útskýra hugmyndir sínar,“ segir hún.
Mentorakerfið skipti miklu máli
Samhliða forritunarkennslunni var boðið upp á mentorastuðning sem sálfræðideild HR hafði umsjón með. Mentorarnir voru nemendur á meistarastigi í klínískri sálfræði og störfuðu í pörum til stuðnings nemendum í náminu.

Bettý Ragnarsdóttir, forstöðukona Háskólaklíníkur sálfræðideildar HR, segir mentorakerfið hafa verið mikilvægan hluta af verkefninu. Áður en námið hófst fengu mentorarnir undirbúning, þjálfun og fræðslu um einhverfu frá Einhverfusamtökunum og sérfræðingum innan sálfræðideildarinnar.
Hlutverk mentoranna var meðal annars að veita nemendum einstaklingsmiðaðan stuðning, auðvelda þeim að aðlagast námsumhverfinu og vera til staðar þegar nemendur þurftu aðstoð við skipulag, markmiðasetningu eða félagsleg málefni.
„Mér fannst ganga vel með mentorana og þeir hlustuðu á nemendur, studdu þá og hjálpuðu þeim að finna sínar leiðir í náminu. Það hefur verið ánægjulegt að sjá hversu miklu máli þessi stuðningur skipti fyrir marga nemendur,“ segir Bettý.
Að sögn Bettýjar skiptu samtölin, regluleg samskipti og einstaklingsmiðaður stuðningur miklu máli. Mentorarnir gátu stutt nemendur í því að fóta sig í nýju námsumhverfi en einnig verið til staðar þegar kom að félagslegum þáttum og daglegu skipulagi í náminu.
Margir vilja halda áfram að læra forritun
Að sögn Pragyu lýstu flestir nemendur yfir áhuga á að halda áfram að læra forritun að námi loknu. Tveir nemendur hafa áhuga á að sækja um nám í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði við HR, einn hefur áhuga á Tækniskólanum og annar lýsti yfir áhuga á verkfræðinámi: „Að námi loknu geta nemendur haldið áfram að æfa sig í forritun og þróa eigin verkefni,“ segir Pragya.
Hún segir námið geta hentað vel fyrir nemendur sem vilja kanna hvort forritun sé eitthvað sem þeir hafi áhuga á: „Nemendur þurfa ekki að hafa neina fyrri reynslu af forritun. Við reynum að gefa hverjum nemanda einstaklingsmiðaðan tíma í tímunum, bæði til að styðja þá í því sem þeim finnst erfitt og til að hjálpa þeim að þróa það sem þeim finnst skemmtilegt,“ segir Pragya og bætir við að námið hafi ekki aðeins gefið nemendum tækifæri til að læra grunnatriði í forritun, heldur einnig að vinna með eigin hugmyndir, byggja upp sjálfstraust og taka þátt í námsumhverfi á eigin forsendum.
Námið verður sett upp aftur í haust og eru nokkur laus pláss í boði. Sjá nánar hér.
Dagsetning
Deila